Fundur starfsfólks Eflingar sem fer fram í dag er nú hafinn. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður félagsins, er ekki viðstödd fundinn en ætla má að umræðuefni hans sé uppsagnir á skrifstofunni sem rötuðu í fjölmiðla í gær. Þetta herma heimildir mbl.is.
Greint var frá því í gær að tillaga Sólveigar Önnu og B-lista hennar, um að öllu starfsfólki Eflingar yrði sagt upp, hefði verið samþykkt með átta manna meirihluta. Var þetta harðlega gagnrýnt af fulltrúum minnihlutans í stjórn.
Eiga uppsagnirnar að vera hluti af breytingartillögu um umfangsmiklar skipulags- og rekstrarbreytingar á skrifstofu Eflingar.
Uppsagnirnar eiga að taka gildi um næstu mánaðamót og verða öll störfin auglýst. Þá er gerð krafa um að starfsmenn vinni uppsagnarfrestinn.