Maður stunginn með eggvopni í miðbænum

Árásin átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur.
Árásin átti sér stað í miðbæ Reykjavíkur. mbl.is/Ari

Tveir karlmenn voru handteknir á fimmta tímanum í nótt eftir að hafa stungið mann með eggvopni í Ingólfsstræti í miðbæ Reykjavíkur.

Kemur fram í dagbók lögreglu að stunguárásin hafi átt sér stað fyrir utan skemmtistað.

Árásarþoli var fluttur með hraði á sjúkrahús. Hann fór samstundis í aðgerð vegna þeirra áverka sem hann hlaut en ekki er vitað hvort viðkomandi er í lífshættu eða ekki.

Mennirnir tveir verða yfirheyrðir síðar í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert