Rebekka nýkjörin forseti Stúdentaráðs

Rebekka Karlsdóttir er laganemi.
Rebekka Karlsdóttir er laganemi. Ljósmynd/Aðsend

Rebekka Karlsdóttir var í kvöld kjörin nýr forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ).

Kosningin fór fram á sérstökum kjörfundi ráðsins en réttindaskrifstofa og nýkjörið Stúdentaráð munu formlega taka til starfa eftir skiptafund undir lok maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Rebekka mun útskrifast með BA gráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands í júní 2022.

Samhliða námi hefur hún starfað sem laganemi hjá BBA//Fjeldco og þar áður sem landvörður hjá Vatnajökulsþjóðgarði. Þá útskrifaðist Rebekka frá Menntaskólanum á Egilsstöðum árið 2016.

Á síðastliðnu ári var Rebekka sviðsráðsforseti á Félagsvísindasviði og sat þá í stjórn Stúdentaráðs og stjórn Félagsvísindasviðs.

Á kjörfundi voru einnig kjörnir eftirfarandi fulltrúar á réttindaskrifstofu Stúdentaráðs:

Varaforseti: Gréta Dögg Þórisdóttir

Hagsmunafulltrúi: Katrín Björk Kristjánsdóttir

Lánasjóðsfulltrúi: María Sól Antonsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert