Agnieszka Ewa Ziólkowska, varaformaður Eflingar, segir í færslu á Facebook að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hafi kosið að hunsa ósk félagsmanna um félagsfund næsta föstudag.
Hátt í 500 félagsmenn Eflingar skiluðu inn undirskriftum til félagsins til að knýja fram félagsfund.
Sólveig Anna hefur boðað til stjórnarfundar á sunnudaginn til þess að ákveða dagsetningu fyrir félagsfundinn að sögn Agnieszku.
„Þegar litið er til þess að síðastliðna mánuði hefur Sólveig Anna farið mikinn í fjölmiðlum og verið tíðrætt um lýðræði, þá verður þetta að teljast ámælisvert, að fara ekki að vilja félagsmanna eða eftir lögum félagsins. Hér sýnir hún enn og aftur einræðistilburði.“
Þá segist Agnieszka fordæmi framferði Sólveigar í þessu máli og krefst þess að hún haldi félagsfundinn á föstudaginn.