„Hérna byrjaði vesenið“

Ekki er heiglum hent að giska á hvor þessara rokkþyrstu …
Ekki er heiglum hent að giska á hvor þessara rokkþyrstu manna hefur vermt forstjórasæti tveggja flugfélaga um dagana en það er ekki sá jakkafataklæddi. Christopher Jagger vinstra megin og til hægri Almar Örn Hilmarsson lögfræðingur sem víða hefur gert strandhögg í atvinnulífinu en sinnir nú atvinnuleitarvefnum Alfreð auk þess að halda úti hlaðvarpi í Prag. Ljósmynd/Aðsend/Samsett mynd

„Þegar kórónufaraldurinn var að byrja fannst mér einhvern veginn eins og mig vantaði eitthvað meira, einhvern vettvang til að tjá mig. Mér hefur alltaf fundist það mjög athyglisvert sem ég hef sjálfur frá að segja, en eftirspurnin hefur kannski verið eitthvað minni,“ segir Almar Örn Hilmarsson, lögfræðingur og hlaðvarpsstjórnandi í hinni fornu og fögru Prag í Tékklandi, þetta síðasta með nokkurri glettni í röddinni.

Það sem kom út úr þessari innibyrgðu tjáningarþörf Almars var hlaðvarpið The Bla Bla Bunker, sem ef til vill mætti snúa yfir á íslensku sem Blaðurbyrginu þótt titillinn bjóði reyndar upp á gnótt þýðingarmöguleika. Einn nýjasti gestur Almars nú á vordögum er Christopher Jagger, breskur tónlistarmaður, leikari og rithöfundur frá Dartford í Kent sem lifað hefur langa ævi í skugga náins ættingja og þarf vart að segja mörgum lesendum að hér er kominn litli bróðir Rolling Stones-líkneskisins Micks Jaggers.

Frá eiturlyfjasölum til stjórnmálamanna

Örlítið meira þó af aðdraganda Blaðurbyrgis Almars sem hann reyndar lifir ekki af, saltið í grautinn mylur hann úr eignarhlut sínum í atvinnuleitarvefnum Alfreð sem senn fagnar tíu ára afmæli sínu og fjölmargir Íslendingar kannast við. Almar á hlut í tékkneska útibúi Alfreðs.

„Þannig að mér datt í hug að búa til podcast [hlaðvarp] og fara að tala um einhverja hluti og rak mig þá næst á að ég vissi í raun ekki nógu mikið um neitt sérstakt til að það gengi upp svo hugmyndin varð eiginlega að fara að tala við fólk sem ég þekkti og sá hópur spannar auðvitað allt frá eiturlyfjasölum upp í stjórnmálamenn,“ heldur hann sköpunarsögunni áfram.

Þýski annálaritarinn David Solomon Ganz hélt því fram í skrifum …
Þýski annálaritarinn David Solomon Ganz hélt því fram í skrifum sínum að Prag hefði verið stofnuð árið 1306 fyrir Krist undir heitinu Boihaem. Hvað sem hæft er í því er hún nú þrettánda stærsta borg Evrópusambandsins og menningarhöfuðstaður Mið-Evrópu. Ljósmynd/Wikipedia.org/A. Savin

Stefnan hafi því verið sett á almennt rabb við Pétur og Pál um hvað þeir væru að fást við, almenna sýn á lífið og tilveruna og þar fram eftir götunum. Verkefnið hafi svo fljótlega undið upp á sig og þróast úr því að vera einn til tveir þættir í mánuði yfir í vikulegan þátt. „Ég fór að fá ábendingar úr ýmsum áttum um fólk sem sniðugt væri að tala við og ég bryddaði líka upp á því að fá viðmælendur sem geta rætt um atburði sem eru að gerast, ég var með fólk um daginn sem var að tala um stríðið í Úkraínu en svo koma svona menn eins og Chris Jagger og þá snerist spjallið um hann og hans ferðalag gegnum lífið,“ útskýrir Almar.

Býr á sveitabæ í Glastonbury

Tilurð þáttarins með Jagger var hálfgerð tilviljun. Almar spjallar reglulega við náunga sem selur vinyl-plötur í Prag og er einnig tónlistarmaður og sá hafi nefnt við hann að á prjónunum væri að taka upp tónlist með Jagger á næstunni sem er með mörg járn í eldinum og sendi í september frá sér plötuna Mixing Up The Medicine samtímis því sem sjálfsævisagan Talking To Myself kom út en platan var sú þrettánda úr smiðju Jaggers sem starfrækir hljómsveitina Atcha þótt ekki hljómi hún á öllum plötunum.

Almar í hljóðveri sínu. „Oftast snýst þetta bara um að …
Almar í hljóðveri sínu. „Oftast snýst þetta bara um að fá fólk til að byrja að tala, á endanum segja flestir eitthvað áhugavert þegar maður kemur þeim á sporið,“ segir hann af starfinu við hlaðvarpið sem spratt af tjáningarþörf í heimsfaraldri. Ljósmynd/Aðsend

Almar lét þá slag standa og sendi Jagger erindi með tilboði um viðtal sem Bretanum leist vel á. „Hann tók svona hrikalega vel í þetta og ætlaði að koma í stúdíóið en tafðist svo í öðru og komst ekki svo við tókum þetta upp á netinu,“ lýsir Almar og geta áhugasamir horft og hlustað á viðtalið á YouTube undir titlinum „The Other Jagger“ og reyndar víðar þar sem hlaðvarp Almars ratar út á lýðnetið allt í senn um veitur Apple, Google og Spotify.

Má þar sjá Bretann í makindum á gömlum sveitabæ í Glastonbury þar sem hann býr og heldur skepnur, þar af hund nokkurn sem sótti mjög fast að narra eiganda sinn í boltaleik meðan á viðtalinu stóð en hafði ekki erindi sem erfiði. Í spjallinu ræðir Jagger meðal annars unglingsárin í Dartford þar sem ekki hafi alltaf verið mikið við að vera á árunum eftir heimsstyrjöldina síðari. Þar, og í Bretlandi almennt, hafi kvikmyndahúsin gegnt veigamiklu menningarhlutverki á meðan sjónvarpsútsendingar voru skammt á veg komnar.

Svo fór fólk á krána

„Bíó var snar þáttur í lífinu, fólk fór í bíó, sjónvarpið var ekki stórt á þessum tíma, einhverjir áttu sjónvarpstæki en dagskrárliðir voru mjög af skornum skammti,“ segir Jagger, „útvarpið og dagblöðin voru þýðingarmiklir miðlar og svo fór fólk á krána, það var það sem almenningur gerði,“ heldur hann áfram og rifjar upp þá breytingu á samfélaginu sem innflutt amerísk dægurmenning hafði í för með sér um miðbik síðustu aldar og upp úr því.

Bræðurnir frá Dartford í Kent, Christopher og Mick Jagger, ein …
Bræðurnir frá Dartford í Kent, Christopher og Mick Jagger, ein elsta rokkstjarna heims. Jagger segir Almari af lífinu í Kent á eftirstríðsárunum, fólk fór í bíó, las blöðin og hittist á kránni en upp úr fásinni smábæjarlífsins reis hljómsveitin The Rolling Stones snemma á sjöunda áratugnum. Ljósmynd/Aðsend

Almar vill þá vita hvort og þá hvers konar stuðnings þeir bræður hafi notið frá foreldrum sínum þegar áhugi þeirra á tónlist var að taka á sig mynd fyrir rúmum 60 árum og hvernig ungum Bretum hafi gengið að fóta sig á þeirri vegferð sem að lokum gat af sér eina nafntoguðustu rokkhljómsveit sögunnar.

„Bróðir minn stóð undir sér peningalega, hann naut styrks þar sem hann var í háskólanámi og þurfti ekki að fá sér vinnu. Meira að segja Keith [Richards] fór í listaskóla sem þýddi að hann þurfti heldur ekki að vinna fyrir sér. Brian Jones hafði vinnu, eða hlutastarf, ég man eftir honum að vinna og ég held að Bill Wyman hafi unnið, Charlie [Watts] líka, Charlie var grafískur hönnuður,“ segir Jagger frá upphafsárum Rolling Stones. Áskoranirnar voru þó skammt undan.

Fá fólk til að byrja að tala

„Hérna byrjaði vesenið. Þarna er spilamennska á tónleikum farin að taka á sig mynd og þá þarf að taka ákvörðun...“ hér er þolinmæði hunds Jaggers endanlega á þrotum og hann geyr mjög, eins og skepnan Garmur fyrir Gnipahelli í frásögn Völuspár, og Jagger skipar dýrinu höstugum rómi að liggja sem kyrrast.

Almar og unnusta hans, Anita Gyarmat, sem rekur veitingastaðinn The …
Almar og unnusta hans, Anita Gyarmat, sem rekur veitingastaðinn The Oat Bar í Prag þar sem Almar hefur annað slagið hlaupið undir bagga þegar á þarf að halda. Ljósmynd/Aðsend

„Þarna þurftu menn að gera það upp við sig hvort þeir ætluðu að verða farsælir tónlistarmenn eða hvort þeir ætluðu að tilkynna hljómsveitinni að þeir gætu aðeins sinnt tónlistinni í hlutastarfi sem táknaði þá að þeir gætu bara spilað um helgar,“ heldur Jagger áfram og rifjar upp sögu af frænda þeirra bræðra, Richard Taylor, sem lék á bassa í Rolling Stones um fimm mánaða skeið í árdaga sveitarinnar en gerði garðinn mun frægari með hljómsveitinni The Pretty Things. „Konan hans krafðist þess að hann hætti alfarið í tónlistinni, en hann fór nú aftur í tónlistina,“ rifjar Jagger upp og rekur upp hlátrasköll.

„Oftast snýst þetta bara um að fá fólk til að byrja að tala, á endanum segja flestir eitthvað áhugavert þegar maður kemur þeim á sporið,“ segir Almar af rekstri hlaðvarps síns en reyndar þarf ekki að horfa lengi á spjall þeirra Jaggers þar til ljóst verður að fyrirhöfnin við að losa um málbein Bretans var ekki ærin, Jagger tekur hreinlega á sprett þar sem hann situr í makindum í stól sínum og má Almar hafa sig allan við til að fylgja honum eftir úr einu umræðuefni í annað auk þess að skjóta inn spurningum og í kjölfar einnar sögunnar, í það sinnið af samstarfi Jaggers við tónlistarmanninn Ike Turner heitinn, þagnar Jagger skyndilega og spyr í hálfgerðum kæruleysistón: „Jæja, var það eitthvað fleira?“

Á puttanum til Aþenu

Jagger er nokkrum árum yngri en bróðir hans í Rolling Stones, varð 74 ára nú skömmu fyrir jól, og hefur því farið gegnum nokkrar tæknibyltingar, í tónlist sem á öðrum vettvangi, en sérstaklega áhugaverð er þó frásögn hans af því þegar þeir vinirnir fóru á puttanum frá Bretlandi til Aþenu í Grikklandi og urðu fljótlega á ferðalaginu viðskila þegar sömu ökumenn höfðu eðlilega ekki rými fyrir þá alla. Engir voru farsímarnir og því brugðið á það ráð að hittast við háborgina Akrópólis.

Vinnan við hlaðvarpið nálgast einn vinnudag á viku í samanlögðu. …
Vinnan við hlaðvarpið nálgast einn vinnudag á viku í samanlögðu. „Ég er að garfa í þessu á kvöldin og um helgar eða áður en ég byrja að vinna á morgnana,“ segir Almar sem horfði á kennslumyndbönd og prófaði sig áfram þegar hann var að læra á klippingar og aðra vinnslu hlaðvarpsþátta sinna. Ljósmynd/Aðsend

„Þeir vissu auðvitað ekkert hve langan tíma það tæki hvern þeirra að húkka sig til Grikklands svo hver og einn fór bara upp að Akrópólis á hverjum degi og beið þar uns hópurinn var að lokum allur kominn saman,“ segir Almar og leynir ekki hrifningunni af þrautseigju Bretanna ungu fyrir mörgum áratugum. „Núna yrði þetta bara leyst með SMS-skilaboðum eða á Messenger en þetta og fleira sem hann sagði mér frá sýnir okkur bara hvað þetta er fjarlægt því sem við nú erum vön.“

Almar segir vinnuframlagið við hvern þátt hlaðvarpsins samanlagt nálgast einn vinnudag eða svo. „Maður tekur á móti gestinum, býður kaffi og talar við hann og svo set ég tónlist inn á og tek upp einhverja stutta kynningu á þættinum. Að lokum ýti ég þessu út á samfélagsmiðla og læt vita af nýju efni, ætli þetta séu ekki svona átta tímar, ég er að garfa í þessu á kvöldin og um helgar eða áður en ég byrja að vinna á morgnana,“ segir hann og játar að á óvart hafi komið hve tæknihliðin sé í raun einföld, klippingar og því um líkt.

Ekki það sem ég hef verið þekktastur fyrir

„Ég heyri af fólki sem langar að vera með podcast en er eitthvað að mikla það fyrir sér, en þetta er miklu minna mál en maður heldur,“ segir Almar sem horfði á kennslumyndbönd á lýðnetinu, prófaði sig áfram og hreinlega spurði sér reyndari hlaðvarpara. Þekkingin sé þó verðmæt og fróðlegt að fylgjast með því hve vandað efni þaulsætnir grúskarar sendi frá sér. „Fyrst var ég fjóra-fimm tíma að klippa til þáttinn, nú er ég kannski 40 mínútur að því,“ segir hann af lærdómi sínum.

Dagleg störf Almars snúast þó um atvinnuvefsetrið Alfreð sem fyrr segir. Eins og svo víða annars staðar blés þar stífur mótvindur í heimsfaraldrinum þegar snarhægði á ráðningum og leit að starfskröftum um allan heim. „Síðasta haust fór þetta svo að fara aftur af stað. Ég er fyrst og fremst í markaðsmálum og samskiptum við viðskiptavini. Kerfið sem við notum er þannig að endalaust er hægt að breyta og bæta við og við skoðum notendahegðun og notendaupplifun. Þetta er kannski ekki það sem ég hef verið þekktastur fyrir gegnum tíðina,“ segir Almar sem margir minnast sem forstjóra danska flugfélagsins Sterling og þar á undan Iceland Express, „en þetta er bara það sem fyrirtækið hefur þurft á að halda.

Christopher Jagger býr á gömlum sveitabæ í Glastonbury, heldur þar …
Christopher Jagger býr á gömlum sveitabæ í Glastonbury, heldur þar skepnur, grípur í gítarinn og fleira en í fyrrahaust gaf hann samtímis út sína þrettándu hljómplötu og sjálfsævisöguna. Ljósmynd/Aðsend

Þú getur verið með stórt fyrirtæki og fullt af einhverjum sérfræðingum og vinnan snýst þá um að stýra þeim og ná því besta út úr öllum, hérna þarf maður meira að gera hlutina sjálfur, ég hef verið að fara yfir blogg-greinar og alls konar hluti og koma með ábendingar um hluti sem við ættum að skrifa um á okkar vef, hvað er heppilegt að setja í tölvupóst til okkar viðskiptavina og svoleiðis. Maður er bara kominn niður á gólf,“ segir Almar Örn Hilmarsson að lokum léttur í bragði, frá Prag í Tékklandi þar sem hann fæst við svo ólíka þætti sem að þjónusta notendur íslensks atvinnuleitarvefjar og rekja garnirnar úr bróður einnar elstu rokkstjörnu heimsbyggðarinnar.     

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert