17,6 gráður og sól á Egilsstöðum

Það var hlýtt víða í dag.
Það var hlýtt víða í dag. Kort/Veðurstofa Íslands

Víða var gott veður á landinu í dag. 17,6 stiga hiti mældist á Egilsstöðum laust fyrir fjögur og var það mesti hiti sem mældist í dag.

Ekki er spáð áframhaldandi blíðviðri fyrir austan og kólnar með morgundeginum.

Nær tuttugu gráður á tíu tímum

2,5 stiga frost mældist á Gauksmýri á Norðurlandi og var það minnsta hitastig sem mældist á láglendi í dag. Sjö stiga frost mældist á Dyngjujökli.

Hitastigið á Egilsstöðum hækkaði um 19,6 gráður á tíu tímum, eða frá því klukkan sex í morgun og þar til hitinn náði hámarki síðdegis í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert