Nokkrir mótmælendur voru samankomnir fyrir framan Ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu þar sem ríkistjórnarfundur fer fram. Fólkið er meðal annars með skilti sem á stendur að það vilji spillinguna út og mannúðina inn.
Þá hrópa þeir að þeir vilji Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra burt. Bankasalan sé kornið sem fyllti mælinn.
„Bjarni burt," er meðal þess sem hrópað er í gjallarhornið. „Bjarna á Hraunið“ heyrist einnig kallað.
Lögreglan ræddi við mótmælendur sem segjast vera með friðsæl mótmæli, en lögreglumönnum hefur fjölgað frá því fólkið kom að ráðherrabústaðnum.
Fjórir lögreglumenn eru nú við mótmælin, og það fjölgar einnig í hópi mótmælenda.