Ótt­arr Proppé fer aftur í stjórnsýsluna

Ótt­arr Proppé var formaður Bjartrar Framtíðar.
Ótt­arr Proppé var formaður Bjartrar Framtíðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óttarr Ólafur Proppé mun leiða stýri­hóp um mál­efni barna á flótta og undirbúa og leiða stýrihóp um málefni barna af erlendum uppruna.

Verkefnin eru meðal annars þáttur í innleiðingu löggjafar um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og menntastefnu til ársins 2030.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu.

Líkt og mbl.is greindi frá þá lauk Ótt­arr Proppé störfum hjá Bók­sölu stúd­enta í byrjun þessa mánaðar. 

Hefur störf í næstu viku

Í tilkynningunni segir að Óttarr hafi víðtæka reynslu úr stjórnsýslu og hafi meðal annars starfað sem heilbrigðisráðherra, alþingismaður og borgarfulltrúi.

Þá hafi hann breiða þekkingu á málaflokknum. Hann var varaformaður skóla- og frístundaráðs Reykjavíkur þar sem hann leiddi starfshóp um börn og fjölmenningarlegt skóla- og frístundastarf, stjórnarmaður í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga og fulltrúi Íslands á sveitarstjórnarvettvangi EFTA þar sem skólamál vega þungt.

Enn fremur segir að Óttarr hafi stýrt þverpólitískri þingmannanefnd um ritun nýrra útlendingalaga sem tóku gildi árið 2016. Lögin hafi verið unnin í breiðu samráði við haghafa innan og utan kerfis vítt og breytt um samfélagið þar sem málefni barna af erlendum uppruna hafi skipað stóran sess. Auk þess hafi Óttarr setið í stjórn UNICEF á Íslandi sl. ár, nú síðast sem stjórnarformaður.

Óttarr hefur störf þann 25. apríl.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert