Stofna stýrihóp um málefni barna á flótta

AFP

Mennta– og barnamálaráðherra hefur ákveðið að stofna stýrihóp um málefni barna á flótta. Stýrihópurinn hefur það hlutverk að vakta stöðu barna sem hingað leita frá öðrum löndum eftir alþjóðlegri vernd og tryggja réttindi og velferð þeirra.

Á hverju ári koma til Íslands mörg börn í leit að alþjóðlegri vernd. Í ár má gera ráð fyrir að töluverð fjölgun verði í þeim hópi en stór hluti þeirra sem hingað hafa flúið vegna átakanna í Úkraínu eru börn. Börn á flótta, sama hvaðan þau koma, eru einn viðkvæmasti hópur sem fyrirfinnst, að því er segir á vef Stjórnarráðsins. 

Stýrihópurinn veitir ráðgjöf um viðbrögð stjórnvalda, um aðstoð á alþjóðlegum vettvangi og um móttöku barna á flótta, auk þess að samræma aðgerðir. Með stofnun hópsins á að tryggja að viðbrögð stjórnvalda séu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, m.a. Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og leiðbeiningar alþjóðastofnana um móttöku barna á flótta. Meðal hlutverka hópsins er að vinna sérstakt hagsmunamat á aðgerðum stjórnvalda fyrir börn á flótta hér á landi út frá réttindum barnanna.

Með hliðsjón af verkefnum hópsins og markmiði með stofnun hans verður hópurinn skipaður fulltrúum opinberra aðila sem koma að málaflokknum og fagfólki af vettvangi, ásamt fulltrúum félagasamtaka, segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert