Þrengt að umferð við Hringbraut

Myndin sýnir allt framkvæmdasvæðið sem teygir sig frá Grandavegi að …
Myndin sýnir allt framkvæmdasvæðið sem teygir sig frá Grandavegi að Mýrargötu, Kort/Veitur

Þrengt hefur verið að umferð við Hringbraut til móts við Framnesveg í Vesturbæ Reykjavíkur en endurnýjun lagna á svæðinu hófst í dag. Þá verða einnig tímabundnar lokanir á Framnesvegi. 

Þetta kemur fram á heimasíðu Veitna sem standa fyrir framkvæmdunum.

Gönguleiðir á svæðinu munu einnig raskast hluta verktímans. 

Í tilkynningu sem Veitur sendu íbúum í dag segir að þegar til þess kemur að loka þurfi fyrir umferð, rafmagn eða vatn á meðan á framkvæmdunum stendur verði íbúar látnir vita eins tímanlega og unnt er.

Veitur hvetja íbúa sem ekki fengu tilkynningu um framkvæmdirnar til að fara inn á Mínar síður og athuga hvort að upplýsingar á borð við símanúmer og netfang séu til staðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert