Páll og Bjarni skjóta á hvorn annan

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra og Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Samsett mynd

Páll Magnússon, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hafa í dag skotið fast á hvorn annan í kjölfar þess að Bjarni mætti í útvarpsþáttinn Sprengisand um helgina og ræddi um sölu á bréfum ríkisins í Íslandsbanka í síðasta mánuði. Páll hafði gagnrýnt söluna og meðal annars sagt að hann vissi um kaupanda sem hefði selt bréf strax daginn eftir og innleyst milljóna hagnað.

Í þættinum gagnrýndi Bjarni þessi orð Páls og sagði ekki hægt að selja bréfin daginn eftir útboðið, þar sem uppgjörsdagur viðskiptanna hefði verið sex dögum eftir að útboðið fór fram. Páll svarar fyrir þetta í aðsendri grein á Vísi í dag og segir þessa fullyrðingu Bjarna ranga.  

Segir Páll að hægt hefði verið að selja bréfin í gegnum framvirka samninga eða með því að selja þau til þriðja aðila með skilmálum um uppgjör og afhendingu eftir sex daga. Að lokum hefði kaupandi sem ætti fyrir bréf í bankanum getað keypt jafn mörg bréf „með afslætti á genginu 117 – og jafnmörg bréf úr gamla stabbanum seld þegar þau voru komin upp í 127 í Kauphöllinni daginn eftir.“

Bjarni svaraði þessum orðum Páls í færslu á Facebook fyrir stuttu og sagði sögu Páls hafa tekið miklum breytingum og að hún ætti ekki lengur við mann sem tók þátt í útboðinu og seldi bréfin næsta dag. „Nú fjallar hún um mann sem gerði afleiðusamning og seldi framvirkt nálægt hæsta gengi sem greitt hafði verið fyrir bréf í Íslandsbanka frá almenna útboðinu, 127,“ segir í færslu Bjarna.

Þá segir Bjarni að þó allt stæðist í sögunni um þennan kaupanda þá væru þau viðskipti ekki lýsandi fyrir dagana eftir söluferlið. Vísaði hann meðal annars til þess að hluthöfum í bankanum hefði fjölgað um 125 frá útboðsdegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert