Fossvogslaug verður að veruleika

Kópavogsbær og Reykjavíkurborg eru sammála um að ný laug verði …
Kópavogsbær og Reykjavíkurborg eru sammála um að ný laug verði við miðbik Fossvogsdals, í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla.

Fossvogslaug verður að veruleika og verður staðsett fyrir miðjum Fossvogsdal. Til að styðja við græn markmið verður ekki gert ráð fyrir almennum bílastæðum við laugina heldur eingöngu stæðum fyrir hreyfihamlaða, aðföng og neyðarbíla.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg og Kópavogsbæ, en þar segir að forsögn varðandi samkeppni um verkefnið sé tilbúin. Það er lýsing sem greinir frá staðsetningu laugarinnar, fyrirhugaðri notkun og kröfum um efnisval, gæði, útlit og annað er máli skiptir fyrir hönnunarsamkeppni um útlit laugarinnar.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs undirrituðu í mars árið 2021 viljayfirlýsingu þess efnis að halda skyldi sameiginlega hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.

„Kópavogsbær og Reykjavíkurborg eru sammála um að ný laug verði við miðbik Fossvogsdals, í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla. Ný laug á að henta fyrir almenningssund, sundkennslu, sundæfingar, námskeið, sundleikfimi, o.fl.,“ segir í tilkynningunni.  

Þá kemur fram, að Fossvogslaug muni nýta einstaka staðsetningu á fjölsóttu útivistarsvæði í fallegu umhverfi en verði um margt einstök.

Engin bílastæði við laugina

„Til að styðja við græn markmið verður ekki gert ráð fyrir almennum bílastæðum við laugina heldur eingöngu stæðum fyrir hreyfihamlaða, aðföng og neyðarbíla. Sundlaugin á ekki að auka bílaumferð um íbúðahverfin sitt hvoru megin við dalinn.“

Sveitarfélögin munu nú hefjast handa við næstu skref við undirbúning samkeppni um hönnun laugarinnar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert