G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar, segir viðræður langt komnar um leigu á Herjólfi hinum þriðja til Færeyja í sumar.
Til stendur að skipið verði notað í ferjusiglingar, en það hefur legið að mestu óhreyft við bryggju í Vestmannaeyjum síðan Herjólfur fjórði var tekinn í gagnið.
Á heimasíðu ríkisútvarps Færeyja stendur að búist sé við að Herjólfur sé væntanlegur þangað til lands um mánaðamótin júní-júlí.