Lilja vígði risastórt lestrarrúm

Svandís Dóra Einarsdóttir, höfundur verksins, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra og …
Svandís Dóra Einarsdóttir, höfundur verksins, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra og Tanja Levý og Jökull Jónsson sem eru hönnuðir verksins. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra afhjúpaði í dag risastórt lestrarrúm á Borgarbókasafninu í Grófinni í dag. Rúmið er innsetning til heiðurs barnabókahöfundum og verkum þeirra.

Með verkinu er ljósinu beint að þeirri mikilvægu bókmenntagrein sem barnabókmenntir eru og þakka barnabókahöfundum fyrir ómetanlegt framlag sitt til menningar og samfélags. 

​„Barnabókmenntir eru oft fyrsta snerting barnsins við heim menningar og lista og skapar rætur fjölbreyttra blóma sem blómstra í börnunum okkar og eru mikilvægur hlekkur í skapandi og gefandi uppeldi. Undanfarin ár hafa stjórnvöld lagt aukna áherslu á að styðja við barnabókmenntir og hefur útgáfa á barnabókum stóraukist í kjölfarið. Við eigum barnabókahöfundum mikið að þakka fyrir að auðga barnæsku okkar og samfélag. Við þá vil ég segja kærar þakkir,“ sagði Lilja við athöfnina í dag. 

Lilja lagðist til rekkju á Bókasafninu í Grófinni og prófaði …
Lilja lagðist til rekkju á Bókasafninu í Grófinni og prófaði nýja lestrarrúmið sem er tileinkað barnabókahöfundum og verkum þeirra. Ljósmynd/Eyþór Árnason

Verkið er einfaldlega risastórt rúm þar sem fólk getur lagst upp í, breytt yfir sig risasæng og valið sér barnabók til að hlusta á eða lesa. Svandís Dóra Einarsdóttir er höfundur verksins en Tanja Levý og Jökull Jónsson eru hönnuður þess. Tilgangur verkefnsin er að fullorðnir geti að nýju upplifað sig sem bar í öryggi stóra rúmsins, látið lesa fyrir sig og leitað í hlýjar minningar æskunnar. 

Hægt verður að njóta verksins til 7. maí næstkomandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert