Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttöku Landspítalans í Fossvogi hefur birt uppsagnarbréfið sitt á Facebook í von um að vekja athygli á ástandinu þar og til að fá ráðamenn til að bregðast við.
Hrönn Guðbjartsdóttir hjúkrunarfræðingur, sem veitti mbl.is góðfúslegt leyfi til að birta færsluna, segist í samtali við blaðamann hafa starfað á bráðamóttökunni í fimm mánuði. Áður starfaði hún á bráðamóttöku í sænsku borginni Karlstad þar sem hún segir ástandið hafa verið betra.
Hjúkrunarfræðingar á bráðadeild hafa áður krafist þess að stjórnvöld og Landspítalinn staðfesti skriflega að ábyrgðin liggi þar en ekki hjá hjúkrunarfræðingum ef upp koma alvarleg atvik sem má rekja beint eða óbeint til álags á bráðamóttökunni.
Í færslunni segir Hrönn ástæðu uppsagnarinnar vera að vegna álags á deildinni telur hún sig ekki geta tryggt öryggi sjúklinganna sem hún er ábyrg fyrir hverju sinni.
Hún segir hjúkrunarfræðinga á bráðamóttökunni vera ábyrga fyrir inniliggjandi sjúklingum sem allir þurfi á hjúkrun að halda, á sama tíma og nýir sjúklingar komi inn sem þurfi á bráðri hjúkrun og læknisaðstoð að halda.
„Með marga inniliggjandi sjúklinga og stöðugt innflæði af nýjum sjúklingum þarf að forgangsraða verkefnum og því miður kemur það niður á öryggi sjúklinga. Eftir að hafa unnið í mörg ár á bráðamóttöku er ég vön því að forgangsraða en ástandið á BMT er, eins og staðan er núna, að mínu mati óásættanlegt og ég tel að sú forgangsröðun sem þar þarf að gera stefni sjúklingunum í hættu,“ skrifar Hrönn og bætir við að hún vilji ekki vera ábyrg fyrir mannslífum þegar hún geti ekki gert það sem þurfi fyrir sína sjúklinga.
„Að gera mitt besta í ómögulegum aðstæðum nægir ekki. Ég vil geta nýtt kunnáttu mína og hæfni sem ég hef eftir áralangt starf á bráðamóttöku og framhaldsnám í bráðahjúkrun en sé ekki hvernig ég á að geta það eins og staðan er,“ skrifar hún einnig.