Sameining Landgræðslu og Skógræktar í forathugun

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur látið hefja forathugun á sameiningu tveggja lykilstofnana í loftslagsmálum, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar.

Stofnanirnar vinna báðar að vistvernd og nýtingu lands og vinna að mörgu leyti hliðstæð verkefni sem snúa að losun og bindingu gróðurhúsalofttegunda.
Landgræðslan og Skógræktin eiga báðar ríka og farsæla sögu um samstarf með grasrótarsamtökum, almenningi og landeigendum. Það umhverfi sem stofnanirnar vinna í hefur tekið hröðum breytingum, og væntingar almennings og stjórnvalda hafa breyst. Ákvörðun matvælaráðherra er tekin með tilliti til þessa, augljósrar skörunar verkefna og mikillar samlegðar, að því er ráðuneytið greinir frá í tilkynningu. 

Þá segir, að samkvæmt nýjum lögum um skógrækt og landgræðslu skuli gera stefnumarkandi áætlanir um landgræðslu og skógrækt til lengri tíma. Í matvælaráðuneytinu sé jafnframt unnið að því að samræmingu tillögur í eina heildaráætlun sem nái m.a. yfir verndun og endurheimt vistkerfa, náttúrumiðaðar lausnir í loftslagsmálum, og sjálfbæra landnýtingu. Þessi nálgun muni einfalda til muna forgangsröðun og þannig stuðla að aukinni skilvirkni og auknum árangri.

Síðustu ár hafa bæði Landgræðslan og Skógræktin aukið ráðgjöf til landeigenda og unnið að mörgum samvinnuverkefnum með þeim. Þar má m.a. nefna skógrækt á lögbýlum og verkefnið Bændur græða landið. Sérfræðingar beggja stofnana búa yfir mikilli sérhæfðri þekkingu og öflugar rannsóknir á vistkerfum, gróðurfari og loftslagi eru stundaðar af beggja hálfu, segir ennfremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert