Sjómannadagsráð og Hrafnista alfarið tekin við Skógarbæ

Frá vinstri: Ari Karlsson, stjm. í sjálsfeignarstofnuninni Skógarbæ, Heiða Björk …
Frá vinstri: Ari Karlsson, stjm. í sjálsfeignarstofnuninni Skógarbæ, Heiða Björk Hilmisdóttir, form. velferðarráðs Rvk.borgar, Ellý Alda Þorsteindsdóttir, stjform. Skógarbæjar, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Örn Þórðarson, stjm. í Skógarbæ, Aríel Pétursson, form. Sjómannadagsráðs, María Fjóla Harðardæóttir, forstjóri Hrafnistu, Rebekka Ingadóttir, forstm. Hrafnistu Skógarbæ, og Oddur Magnússon, stjm. í Sjómannadagsráði. Ljósmynd/Aðsend

Sjómannadagsráð og Hrafnista, sem hafa frá því í maí 2019 annast stjórn hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar í samstarfi við Reykjavíkurborg, tóku formlega að fullu við stjórn heimilisins í gær, 1. maí.

Greint er frá þessu í fréttatilkynningu.

Í mars 2019 undirritaði sjálfseignastofnunin Skógarbær, sem átti og rak samnefnt hjúkrunarheimili við Árskóga, skammt frá Mjódd í Reykjavík, samning við Sjómannadagsráð, eiganda Hrafnistu, um að Hrafnista tæki við rekstri hjúkrunarheimilisins þann 2. maí 2019. Rekstur og skuldbindingar starfseminnar hvíldu áfram hjá Skógarbæ, en Hrafnista tók yfir stjórn og rekstur.

Á samningstímabilinu, sem var til að byrja með til ársloka 2020, var Skógarbær sjálfstæður hluti rekstrarsamstæðu Sjómannadagsráðs. Í samningnum fólst einnig nýting og rekstur á hluta af húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Árskóga, sem samtengd er hjúkrunarheimilinu og rekin er af Reykjavíkurborg.

Farsælt samstarf við borgina

Hjúkrunarheimilið og sjálfseignarstofnunin Skógarbær var stofnsett árið 1997 af Reykjavíkurborg, Rauða Krossinum í Reykjavík og Eflingu stéttarfélagi. Á heimilinu er 81 hjúkrunarrými og m.a. sérstök þjónusta fyrir unga hjúkrunaríbúa. Við þau tímamót sem nú eru fram undan eru fulltrúum Sjómannadagsráðs og Hrafnistu fyrst og fremst þakklæti efst í huga í garð Reykjavíkurborgar fyrir það traust sem borgin sýnir Sjómannadagsráði og Hrafnistu með þeirri ákvörðun að fela þeim alfarið rekstur Skógarbæjar með áframhaldandi umönnun íbúa ásamt umsjón með rekstri fasteignarinnar.

„Samstarfið við Reykjavíkurborg hefur verið gríðarlega gott og nýjasta afurð þessa farsæla samstarfs er lífsgæðakjarninn við Sléttuveg í Fossvogi sem tók til starfa í febrúar árið 2020,“ segir María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert