Ekki hægt að verja gjörðir stjórnar Eflingar

Samsett mynd/mbl.is

Verkalýðshreyfingin er einn af hornsteinum íslensks samfélags. Því er það ekki einkamál eins félags ef það gengur í berhögg við gildi hreyfingarinnar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Húsi Fagfélaganna vegna hópuppsagnar innan Eflingar. 

„Hópuppsagnir eru og eiga að vera neyðarúrræði fyrirtækja til að forða greiðsluþroti eða alvarleg vá sé fyrir dyrum í rekstri fyrirtækja. Því er aldrei hægt að réttlæta skipulagsbreytingar eða jafnlaunavottun sem ástæðu hópuppsagna. Þá skal áréttað að verja skal trúnaðarmenn stéttarfélaga í hópuppsögnum,“ segir í yfirlýsingunni. 

„Ekki er hægt undir neinum kringumstæðum að verja þær gjörðir naums meirihluta stjórnar Eflingar – Stéttarfélags sem hafa verið kynntar og harma Fagfélögin á Stórhöfða að stjórnin hafi ekki dregið þessa gjörð í heild sinni til baka,“ segir enn fremur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert