Líðan ökumanns bifreiðar sem fór út af þjóðvegi 1 undir Eyjafjöllum í gær er eftir atvikum góð, en hann er enn á sjúkrahúsi. Þetta staðfestir Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi.
„Ég veit að það lítur mun betur út en það gerði í gær,“ segir Oddur í samtali við mbl.is, en frekari upplýsingar hefur hann ekki um ástand ökumannsins.
Landhelgisgæslan var kölluð út vegna slyssins í gær, en gat ekki sinnt útkallinu þar sem enginn flugstjóri var á vakt.
„Vegna veikinda var enginn flugstjóri á vakt og ekki reyndist unnt að kalla til flugstjóra á frívakt til þess að manna útkallshæfa áhöfn. Því gat þyrlusveitin ekki sinnt þessu útkalli, því miður,“ sagði Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, í samtali við mbl.is í gær.
Slysið var tilkynnt klukkan 11:08 í gærmorgun og viðbragðsaðilar þá strax kallaðir til, annarsvegar frá Vík og hins vegar úr vestri, að greint var frá á Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi.