Ársfundur Landspítala fer fram í Silfurbergi í Hörpu í dag frá kl. 14.00 til 16.00. Yfirskrift ársfundarins er „Framþróun í kjölfar faraldurins.“
Ávörp flytja Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Runólfur Pálsson forstjóri.
Ársreikningur 2021 verður kynntur og starfsfólk heiðrað.
Á ársfundinum verður fjallað um nýja nálgun í mannauðsmálum, vísindastarf á spítalanum, nýsköpun og umbætur í starfinu.
Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi hér að neðan: