Búið er að setja af stað vinnu í heilbrigðisráðuneytinu sem lýtur að lagabreytingum sem kveða á um að afnema refsinæmi heilbrigðisstarfsfólks.
Frá þessu greindi Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á ársfundi Landspítala sem fer nú fram í Hörpu.
Ráðherra sagði öryggiskennd dýrmætan þátt í heilbrigðisþjónustu en lagði jafnframt áherslu á að hún yrði að vera gagnkvæm.
„Það er afar brýnt að við leggjum til lagabreytingar sem varða það að afnema refsinæmi heilbrigðisstarfsmanna,“ sagði Willum og uppskar lófatak starfsmanna. „Það er í þessu tilliti að við verndum þessa gagnkvæmu öryggiskennd.“