Lokatölur eru komnar úr Hveragerði. Okkar Hveragerði fær inn þrjá fulltrúa með 39,4% atkvæða og Sjálfstæðisflokkurinn tapar tveimur og fær því tvo inn með 32,6% atkvæða. Framsókn fékk 28% atkvæða og fær því inn tvo fulltrúa og bætir þar með við sig einum.