Standandi lófatak tók á móti Andrea Bocelli þegar hann steig á svið í Kórnum í Kópavogi en þar hélt hann tónleika í kvöld. Stórsöngvarinn brosti þegar hann heyrði í salnum standa upp en Bocelli er, líkt og margur veit, blindur.
Um er að ræða með stærri tónleikum sem haldnir hafa verið hér á landi og segir meðal annars á vef tix.is að um sé ræða „stærstu sitjandi tónleika fyrr og síðar á Íslandi“.
Ljósmyndir úr fyrstu atriðunum má sjá hér: