Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, er nýr formaður Rauða krossins á Íslandi en aðalfundur Rauða krossins fór fram á Grand hótel í dag.
Aðalfundarfulltrúar frá 16 deildum víðsvegar um landið mættu.
Silja Bára tekur við sem formaður félagsins af Sveini Kristinssyni sem gegnt hefur formennsku sl. 8 ár. Varaformaður Rauða krossins var kjörin Sigríður Stefánsdóttir.
Þá voru þau Ívar Kristinsson, Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar, Sigurjón Haukur Valsson, Símon Friðrik Símonarson og Valgerður Bláklukka Fjölnisdóttir kjörin í stjórn. Áfram sitja í stjórninni þau Baldur Steinn Helgason, Elín Ósk Helgadóttir, Gréta María Grétarsdóttir og Sveinn Þorsteinsson. Varamenn voru kjörin Auðbjörg Brynja Bjarnadóttir og Unnsteinn Ingason.