Fimm í gæsluvarðhaldi eftir lögregluaðgerðir

mbl.is/Eggert

Fimm sitja í gæsluvarðhaldi eftir aðgerðir lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn skipulagðri brotastarfsemi, sem ráðist var í fyrir helgina.

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglu að lagt hafi verið hald á umtalsvert magn af marijúana, eða um 40 kg, en leitir voru framkvæmdar á allmörgum stöðum, bæði í húsum og ökutækjum.

„Um var að ræða aðgerðir gegn framleiðslu, sölu og dreifingu fíkniefna, auk peningaþvættis, en lögreglan tók einnig í sína vörslu ökutæki, peninga og tölvubúnað. Nokkrir tugir lögreglumanna tóku þátt í aðgerðunum, en við þær naut embættið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra og lögreglunnar á Suðurlandi. Alls voru tíu manns handteknir í þágu rannsóknarinnar og fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald eins og áður sagði, en varðhaldið er til tveggja vikna,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni, sem bætir því við að rannsókn málsins miði vel. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert