Í morgun hófst lagning nýs sæstrengs á milli Íslands og Írlands, en sæstrengurinn hefur fengið nafnið Íris. Vinnuvélar voru mættar í Hafnarvík við Þorlákshöfn, en úti fyrir ströndu var svo kaplaskipið Durable sem tekur við strengnum og mun leggja hann yfir Atlantshafið til Galway á Írlandi.
Skipið kom til landsins á föstudaginn og var farið beint í að undirbúa lagninguna sem svo hófst formlega í morgun.
Það eru starfsmenn bandaríska strengjaframleiðandans SubCom sem sjá um lagninguna.
Strengurinn er í eigu Farice ehf., félags sem er í fullri eigu ríkisins, en félagið hefur síðustu ár unnið að undirbúningi lagningar nýja strengsins en með honum er nokkurn veginn tryggt að landið verði aldrei sambandslaust. Fyrir eru tveir fjarskiptastrengir, Farice 1, sem liggur til Skotlands með tengingu við Færeyjar, og Danice sem liggur til Danmerkur.
Gert er ráð fyrir að strengurinn verði, ef allt gengur samkvæmt áætlun, tilbúinn til notkunar fyrir árslok.