Mál manns, sem er grunaður um mansal á ungum dreng, er í fullri rannsókn, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum.
Maðurinn sætir ekki lengur gæsluvarðhaldi, heldur tilkynningaskyldu á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
„Þetta er snúið mál en það er í rannsókn og hefur sinn gang,“ segir Úlfar, spurður út í rannsóknina. Aðspurður segist hann ekki vilja greina frá þjóðerni mannsins og drengsins.
Grunur leikur á um að brotið hafi verið gegn drengnum kynferðislega og hann beittur vanvirðandi meðferð.
Þann 28. apríl hafði lögregla afskipti af karlmanni sem hafði ungan dreng í för með sér. Þeir komu saman með flugi frá Kaupmannahöfn og voru án ferðaskilríkja en karlmaðurinn framvísaði afritum af ætluðum vegabréfum.
Karlmaðurinn óskaði í framhaldinu eftir alþjóðlegri vernd fyrir sína hönd og drengsins. Hann kvaðst hafa verið á flakki um Evrópu í þrjú ár ásamt barninu og skilið það um tíma eftir hjá skyldmennum.
Þá framvísaði hann gögnum til stuðnings heimild sinni til að ferðast með barnið, en lögregla telur skjalið ótraust og geta sérfræðingar ekki fullyrt um áreiðanleika innihaldsins, að því er fram kemur í dómi Héraðsdóms Suðurnesja, sem var staðfestur af Landsrétti.