Séra Davíð Þór Jónsson, sóknarprestur í Laugarneskirkju, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við mbl.is í gær.
Í viðtalinu sagði Davíð að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra væri „allt önnur manneskja“ en hann þekkti er þau voru í sambandi, en því lauk árið 2004.
„Ég iðrast þessara orða og tek þau hér með aftur,“ segir Davíð í færslunni.
Davíð hefur verið í umræðunni undanfarna daga, meðal annars fyrir að kalla ríkisstjórn Katrínar fasistastjórn og sagt sérstakan stað í helvíti fyrir þinglið og ráðherra flokksins.