Verulega hefur dregið úr landrisi á svæðinu vestur af Þorbirni frá 26. maí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Ekkert landris hefur mælst á GPS-mælum síðustu þrjá til fjóra daga. Eins hefur verulega dregið úr skjálftavirkni á svæðinu.
Í ljósi þessa hefur fluglitakóða fyrir svæðið færður niður á grænan af gulum. Óvissustig almannavarna er þó ennþá í gildi.
Í tengslum við eldsumbrotin og virknina á Reykjanesskaga hafa vísindamenn unnið líkön út frá skjálftagögnum, GPS gögnum og gervihnattamyndum til að áætla staðsetningu og magn þeirrar kviku sem er á hreyfingu undir jarðskorpunni.
Með þessum líkönum er hægt að áætla hvort kvikan sé að hreyfast lárrétt eða lóðrétt og afmarka möguleg umbrotasvæði, að vissu leyti, ef til eldgoss kæmi.