Erna Kristín Blöndal skrifstofustjóri hefur verið skipuð í embætti ráðuneytisstjóra mennta- og barnamálaráðuneytisins frá og með deginum í dag. Erna tekur við af Páli Magnússyni en hann fer til starfa hjá fastanefnd Íslands í Genf, að því er kemur fram í tilkynningu. Hann hefur gegnt embættinu frá árinu 2019.
Í Genf mun Páll starfa á sviði málefna barna m.a. við að efla alþjóðlegt samstarf íslenskra stjórnvalda hvað varðar velferð og réttindi barna en einnig á sviði alþjóðavinnumála og alþjóðaheilbrigðismála m.a. með eflingu tengsla við Alþjóðavinnumálastofnunina (ILO) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO).
Erna er með BA- og meistaragráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands, býr yfir mikilli reynslu af störfum innan Stjórnarráðsins og íslenskrar stjórnsýslu og hefur haldið utan um stór verkefni á vegum íslenskra stjórnvalda, segir í tilkynningu.
Hún hefur gegnt embætti skrifstofustjóra síðan 2019, fyrst á skrifstofu barna- og fjölskyldumála hjá félagsmálaráðuneytinu (nú félags- og vinnumarkaðsráðuneyti) og nú síðast skrifstofu barnamála í mennta- og barnamálaráðuneyti.
Á sínum tíma komst kærunefnd jafnréttismála að þeirri niðurstöðu að Lilja Dögg Alfreðsdóttir, þáverandi menntamálaráðherra, nú menningar- og viðskiptaráðherra, hefði brotið jafnréttislög með ráðningu Páls, í stöðu ráðuneytisstjóra menntamálaráðuneytisins, í stað þess að ráða Hafdísi Helgu Ólafsdóttur í starfið. Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði kröfu Lilju um að úrskurður kærunefndar jafnréttismála yrði ógiltur.
Í úrskurði kærunefndarinnar sagði m.a. að annmarkar hafi verið á málsmeðferð og ákvarðanatöku ráðuneytisins við mat og val á umsækjendum um stöðuna. Þannig hafi menntun, reynsla af opinberri stjórnsýslu, leiðtogahæfileikar og hæfni Hafdísar verið vanmetin.