Gómaður á 116 kílómetra hraða í borginni

Frá Sæbraut. Mynd úr safni.
Frá Sæbraut. Mynd úr safni. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Brot 343 öku­manna voru mynduð á Sæ­braut í Reykja­vík frá fimmtu­deg­in­um 9. júní til mánu­dags­ins 13. júní. Fylgst var með öku­tækj­um sem var ekið Sæ­braut í vesturátt, á gatna­mót­um við Lang­holts­veg.

Á rúm­lega fjór­um sól­ar­hring­um fóru 24.111 öku­tæki þessa akst­urs­leið og því óku hlut­falls­lega mjög fáir öku­menn of hratt eða yfir af­skipta­hraða, að því er fram kem­ur á vef lög­regl­unn­ar.

Meðal­hraði hinna brot­legu var 80 km/​klst en þarna er 60 km há­marks­hraði. Sá sem hraðast ók mæld­ist á 116.

Fjór­um öku­tækj­um var ekið gegn rauðu ljósi á um­ræddu tíma­bili.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert