44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram í Laugardalshöll dagana 4. til 6. nóvember næstkomandi.
Miðstjórn flokksins hefur ákveðið þetta. Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð.
Seturétt á landsfund eiga flokksráðsfulltrúar flokksins, auk þess sem félög og fulltrúaráð kjósa fulltrúa til setu á fundinum.