Óvenju fáir þingfundadagar

Þingfundum 152. löggjafarþings var frestað 16. júní 2022. Þingið var að störfum frá 23. nóvember til 28. desember 2021 og frá 17. janúar til 16. júní 2022.

Þingfundir voru samtals 94 og stóðu í rúmar 550 klst., að því er fram kemur í tilkynningu frá Alþingi.

Meðallengd þingfunda var 5 klst. og 47 mín. Lengsti þingfundurinn stóð í 13 klst. og 40 mín. Lengsta umræðan var um fjárlög 2022 en hún stóð samtals í 35 klst. og 36 mínútur. Þingfundadagar voru alls 80 og hafa oft verið fleiri. Til samanburðar voru þeir 99 á 151. löggjafarþingi.

Af 205 frumvörpum varð alls 81 að lögum, 121 var óútrætt, tvö voru kölluð aftur og eitt ekki samþykkt. Af 147 þingsályktunartillögum voru 29 samþykktar, 116 tillögur voru óútræddar og tveimur var vísað til ríkisstjórnarinnar.

Þinghúsið.
Þinghúsið. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Af 205 frumvörpum varð alls 81 að lögum, 121 var óútrætt, tvö voru kölluð aftur og eitt ekki samþykkt. Af 147 þingsályktunartillögum voru 29 samþykktar, 116 tillögur voru óútræddar og tveimur var vísað til ríkisstjórnarinnar.

22 skriflegar skýrslur voru lagðar fram. Níu beiðnir um skýrslur komu fram, þar af sex til ráðherra og þrjár til ríkisendurskoðanda. Ráðherrar fluttu þrjár munnlegar skýrslur.

Fyrirspurnir á þingskjölum voru samtals 377. Fyrirspurnir til munnlegs svars voru 35 og var 30 svarað en ein kölluð aftur. 342 skriflegar fyrirspurnir voru lagðar fram og var 249 þeirra svarað. 93 biðu svars er þingi var frestað.

Þingmál til meðferðar í þinginu voru 765 og tala prentaðra þingskjala var 1402.

Óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra voru 200. Sérstakar umræður voru 21.

Samtals höfðu verið haldnir 374 fundir hjá fastanefndum þegar þingfundum var frestað 16. júní.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka