Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur mun leiða vinnu mennta- og barnamálaráðuneytisins við innleiðingu aðgerðaráætlunar um geðrækt, forvarnir og stuðning við börn og ungmenni í leik-, grunn- og framhaldsskólum.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu.
„Sú vinna er hluti af aðgerðum við menntastefnu til 2030 og innleiðingu nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna og mun grundvallast á tillögum starfshóps um geðrækt í skólum sem samþykktar voru af ríkisstjórn 2020.“
Sigrún er sálfræðingur að mennt og sérfræðingur í klínískri barnasálfræði en síðastliðinn áratug hefur hún gegnt stöðu verkefnastjóra geðræktar hjá embætti landlæknis þar sem hún hefur leitt margvísleg verkefni á sviði stefnumótunar, svo sem vinnuhóp um geðrækt og forvarnir fyrir geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda til ársins 2020, aðgerðaáætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi og áætlun um innleiðingu geðræktar, forvarna og stuðnings við börn og ungmenni í skólum. Þá hefur Sigrún einnig leitt geðræktarþátt Heilsueflandi leik-, grunn- og framhaldsskóla og Heilsueflandi samfélags hjá Embætti landlæknis.
„Sigrún mun fara fyrir teymi innan ráðuneytisins sem verður falið að gera nánari áætlun um innleiðingu þrepaskipts stuðnings í íslensku skólakerfi með áherslu á geðrækt, forvarnir og snemmtæk úrræði vegna vegna náms-, hegðunar-, félags- og tilfinningalegra erfiðleika. Þessi vinna er undirstöðuþáttur við innleiðingu nýrra laga um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna enda er skólaumhverfið, næst á eftir heimilum barna, mikilvægasta umhverfi þeirra,“ segir í tilkynningu.
Þar er haft eftir Ásmundi Einari Daðasyni, mennta- og barnamálaráðherra:
„Í skólum landsins koma öll börn samfélagsins saman á hverjum degi sem skapar dýrmæt tækifæri til geðræktar og eflingar á félags- og tilfinningaþroska. Af þeim sökum er skólinn afar mikilvægur vettvangur fyrir geðrækt og forvarnir en sóknarfæri til að efla geðheilsu eru mest í æsku. Ég bind vonir við að þessi vinna muni efla bæði heilsu, vellíðan, námsárangur og farsæld barna til framtíðar.“