Aurskriða féll niður Eyrarhlíð yfir veginn milli Hnífsdals og Ísafjarðar í morgun. Veginum var í kjölfarið lokað en samkvæmt tísti Vegagerðarinnar hefur hann nú aftur verið opnaður.
Fréttin hefur verið uppfærð í samræmi við nýjustu upplýsingar
Athugið: Búið er að opna veginn á milli Ísafjarðar og Hnífsdals. #færðin
— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) June 21, 2022