Knattspyrnudeild Þróttar hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna skipulags N1-mótsins sem fór fram á Akureyri um helgina. Í henni segir að á mótinu hafi lið sýnt framkomu sem ekki á að sjást á knattspyrnuvellinum; „framkomu sem einkenndist af agaleysi og vanvirðingu gagnvart mótherjum og starfsmönnum mótsins“.
Því hafi Þróttur ákveðið að senda ekki eitt af liðum sínum á leik til að keppa um sæti á mótinu. Er þar vísað í leik FH1 og Þróttar.
Alvöru stemning í lokaleik á N1 mótinu!
— Andrea Marý (@andreaaamary) July 2, 2022
FH 1 vs Foreldrar þar sem Þróttur Reykjavík mætti ekki í leik um 5.sæti
Læt myndband fylgja af lengjudeildar skvísunni Elísu Lönu sem setti þrennu í leiknum - alvöru leikmaður
#N1mótið #fotboltinet #Elísameðneglu pic.twitter.com/xiJjaq2eTo
Nokkur umræða hefur skapast um skróp Þróttara á samfélagsmiðlum og kom yfirlýsingin síðan seint í kvöld.
Í henni segir sömuleiðis að ábyrgðaraðilar, það er þjálfarar, dómarar og mótsstjórar, hefðu átt að grípa inn í hegðunina. Það hafi ekki verið gert og harmar Knattspyrnudeild Þróttar það.
„Félagið tók í kjölfarið ákvörðun um að senda ekki eitt af liðum sínum í kappleik um sæti á mótinu. Var það mat yfirþjálfara félagsins og að enginn ávinningur væri fyrir lið Þróttar að taka þátt í leik sem snérist um eitthvað allt annað en fótbolta,“ segir í yfirlýsingunni.