Um hádegi í dag var björgunarsveitin í Grindavík kölluð til við Fagradalsfjall vegna eldri manns sem hafði slasast við göngu á svæðinu.
Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við mbl.is.
Tveir hópar sóttu manninn ásamt sjúkraflutningamönnum og flutti hann í sjúkrabíl. Davíð segir björgunarsveitina í Grindavík orðin vana slíkum útköllum og því gekk vel að flytja manninn.
Hann segir að engin útköll hafi orðið það sem af er degi vegna veðurs á austanverðu landinu en gular veðurviðvaranir gilda til morguns.
Björgunarsveitir voru kallaðir seint í gærkvöldi vegna fólks sem festi bílinn sinn í Markafljóti á Fjallabaksleið syðri. Þá var útkall í tvígang í nótt og í morgun vegna fastra bíla á hálendinu.