Með vísbendingar um hnífamanninn

Maðurinn tók í hurðarhúninn með hníf í hendi.
Maðurinn tók í hurðarhúninn með hníf í hendi. mbl.is/Skjáskot

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu hef­ur vís­bend­ing­ar um hver maður­inn er sem gekk á milli húsa og tók í hurðar­húna í Garðabæ vopnaður hnífi á laug­ar­dags­morg­un.

„Við höfðum sam­band við íbú­ann sem er nefnd­ur í ykk­ar frétt og við erum búin að færa þetta til bók­ar hjá okk­ur. Það hafa borist til­kynn­ing­ar til okk­ar frá fólki sem seg­ist þekkja mann­inn í mynd­band­inu,“ seg­ir Skúli Jóns­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn í sam­tali við mbl.is.

mbl.is greindi frá því í morg­un að ung­ur maður hefði gengið um í Flata­hverfi í Garðabæ á laug­ar­dags­morg­un með hníf í hendi, en hann tók í hurðar­húna í hverf­inu. Maður­inn náðist á mynd­skeiði í dyra­bjöll­unni íbúa á svæðinu.

Búið er að færa málið til bókunn­ar hjá lög­regl­unni sem er með mynd­skeiðið í hönd­un­um og er málið til rann­sókn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert