Reiknað er með því að rannsókn á máli manns sem er grunaður um mansal á ungum dreng, ljúki með haustinu.
Þetta segir Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is. Hann bætir við að drengurinn sé í umsjón á góðum stað.
Maðurinn sætir ekki gæsluvarðhaldi, heldur tilkynningaskyldu og hefur óskað eftir alþjóðlegri vernd.
Grunur leikur á um að brotið hafi verið gegn drengnum kynferðislega og hann beittur vanvirðandi meðferð.
Þann 28. apríl hafði lögregla afskipti af manninum sem hafði drenginn í för með sér. Þeir komu saman með flugi frá Kaupmannahöfn og voru án ferðaskilríkja en maðurinn framvísaði afritum af ætluðum vegabréfum.
Hann kvaðst hafa verið á flakki um Evrópu í þrjú ár ásamt barninu og skilið það um tíma eftir hjá skyldmennum.
Þá framvísaði hann gögnum til stuðnings heimild sinni til að ferðast með barnið, en lögregla taldi skjalið ótraust og gátu sérfræðingar ekki fullyrt um áreiðanleika innihaldsins, að því er fram kom í dómi Héraðsdóms Suðurnesja, sem var staðfestur af Landsrétti.