Líkur á að bílastæðin fyllist í júlí

Keflavíkurflugvöllur.
Keflavíkurflugvöllur. mbl.is/Kristinn Magnússon

Líkur eru á að bílastæði við Keflavíkurflugvöll fyllist í júlímánuði og eru farþegar hvattir til að bóka stæði með góðum fyrirvara, að því er segir í tilkynningu frá Isavia.

Komi til þess að bílastæði verði fullnýtt eru farþegar, sem ekki eru með bókuð stæði, hvattir til að nota aðra samgöngumáta til að komast til og frá flugvellinum.

Bókunarkerfi fyrir bílastæði má finna á vefsíðu Keflavíkurflugvallar, en þar er hægt að fá stæðin á betri kjörum en þegar greitt er við hlið. Lægra verð fæst eftir því sem fyrr er bókað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert