Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti tvo sjúklinga á Landspítalann eftir alvarlegt umferðarslys á Suðurlandi, nálægt Kirkjubæjarklaustri, í nótt.
Að sögn Gæslunnar lenti þyrlan við spítalann klukkan hálfsex í morgun.
Ekki náðist í lögregluna á Suðurlandi við vinnslu fréttarinnar.