Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys

Tveir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Fjallabaksleið.
Tveir voru fluttir á slysadeild eftir umferðarslys á Fjallabaksleið.

Tveir voru flutt­ir á sjúkra­hús í dag eft­ir um­ferðarslys er varð á Fjalla­bak­sleið nyrðri í grennd við Ljóta­poll, upp úr klukk­an 12. 

Hinir slösuðu voru komn­ir í sjúkra­bíl rétt fyr­ir klukk­an 14.00 en björg­un­ar­sveit­ir voru kallaðar út til þess að flytja fólkið til móts við bíl­inn.

Var fólkið flutt á Heil­brigðis­stofn­un Suður­lands til aðhlynn­ing­ar, að sögn Davíðs Már Bjarna­son­ar. Hann gat ekki gefið frek­ari upp­lýs­ing­ar um líðan fólks­ins að svo stöddu.

Sjúkra­bíl­ar, lög­regla og björg­un­ar­sveit­ir á há­lendis­vakt í Land­manna­laug­um komu á vett­vang, ásamt björg­un­ar­sveitar­fólki á Suður­landi, þegar slysið bar að.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert