Loka Austurvegi til austurs vegna framkvæmda

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Til stend­ur að fræsa ak­rein á Aust­ur­vegi á Sel­fossi að kvöldi til annað kvöld og aðfaranótt þriðju­dags.

Veg­in­um verður lokað til aust­urs og há­marks­hraði lækkaður fram­hjá fram­kvæmda­svæðinu. Þá verða viðeig­andi merk­ing­ar og hjá­leiðir sett­ar upp, að því er fram kem­ur í til­kynn­ingu.

Áætlað er að fram­kvæmd­irn­ar standi frá kl. 19 til 01.

Veg­far­end­ur eru beðnir um að virða merk­ing­ar og hraðatak­mark­an­ir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin séu þröng og menn og tæki við vinnu mjög ná­lægt akst­urs­braut­um.

Fram­kvæmd­um frestað á Vest­ur­lands­vegi

Áform voru uppi um að fræsa og mal­bika ak­rein á Vest­ur­lands­vegi til aust­urs á milli suður­lands­veg­ar og Ulfars­fells­veg­ar í kvöld og aðfar­arnótt mánu­dags en þeim fram­kvæmd­um  hef­ur verið frestað.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert