Jóhanna Ósk nýr svæðisstjóri Eimskips

Jóhanna Ósk Halldórsdóttir er nýr svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum.
Jóhanna Ósk Halldórsdóttir er nýr svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum. Samsett mynd

Jóhanna Ósk Halldórsdóttir hefur verið ráðin svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum, að því er fram kemur í tilkynningu frá Eimskip.

Þar segir að Jóhanna Ósk sé með BSc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og að hún  hafi síðustu ár starfað sem sölustjóri hjá fiskeldisfyrirtækinu Hábrún ehf.

„Við erum mjög ánægð að fá Jóhönnu til liðs við Eimskip og reynsla hennar úr sjávarútveginum mun koma að góðum notum hjá Eimskip. Vestfirðir eru afar mikilvægt svæði í okkar áætlunarflutningum, útflutningi og fiskflutningum innanlands. Eimskip rekur afgreiðslu á Ísafirði og á Patreksfirði sem þjónusta Vestfirði varðandi innanlandsflutninga ásamt inn-og útflutningi á svæðinu,“ segir Böðvar Örn Kristinsson, framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert