Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Kolfinnu Jóhannesdóttur í embætti skólameistara Kvennaskólans í Reykjavík til fimm ára frá 1. ágúst.
Alls sóttu átta um embættið.
Kolfinna starfaði sem sviðsstjóri greiningarsviðs Menntamálastofnunar 2018–2022 og sérfræðingur á sviði framhaldsskólamála og teymisstjóri framhaldsskóla- og velferðarmála hjá stofnuninni 2016–2018.
Þá var hún skólameistari Menntaskóla Borgarfjarðar 2011–2014 þegar hún tók við starfi sveitarstjóra Borgarbyggðar sem hún gegndi til ársins 2016.
Kolfinna er með háskólapróf í rekstrarfræðum frá Samvinnuháskólanum á Bifröst, B.S.-gráðu í viðskiptafræði og M.A.-gráðu í hagnýtum hagvísindum frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Hún er jafnframt með diplómu í kennslufræði frá Háskólanum í Reykjavík, diplómu í menntaforystu og stjórnun frá Háskólanum í Nottingham.
Einnig hefur hún stundað doktorsnám á sviði menntavísinda frá árinu 2016, fyrst við Háskólann í Nottingham og síðan við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.