Karlmaður um fertugt hefur verið látinn laus úr gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hafa kveikt í húsnæði í Kaupmannahöfn í nóvember í fyrra þar sem Íslendingur lést.
Í svari við fyrirspurn mbl.is segir lögreglan í Kaupmannahöfn að eftir langa rannsókn hafi ekki tekist að sanna að um íkveikju hafi verið að ræða. Því hafi kæra gegn manninum verið felld niður og honum sleppt lausum. Málið hefur sömuleiðis verið látið niður falla.
Íslendingurinn lést eftir að kviknað hafði í smáhýsi á eyjunni Amager, sem tilheyrir að hluta til Kaupmannahöfn, aðfaranótt þriðjudagsins 9. nóvember í fyrra.
39 ára karlmaður var handtekinn vegna málsins, sem var rannsakað sem íkveikja.