Aurskriða féll á Seyðisfirði við Fjarðarselsvirkjun í morgun. Aðrennslisrör að stöðvarhúsi fór í sundur og orsakaði talsverðan vatnsflaum í Fjarðará yfir veginn að Fjarðarseli, að gömlu stöðvarhúsi sem þar er.
Að sögn lögreglunnar á Austurlandi gekk greiðlega að loka fyrir flauminn en vegurinn varð fyrir smávægilegum skemmdum. Búið er að lagfæra veginn og er hann opinn.
Fram kemur að stutt sé síðan svipað atvik átti sér stað.
Af hálfu eigenda virkjunarinnar stendur yfir skoðun á aðstæðum með það að markmiði að koma í veg fyrir að samskonar atvik endurtaki sig.