Fólk beðið lengi eftir framkvæmdinni

Karl og Bergþóra við undirritun samningsins.
Karl og Bergþóra við undirritun samningsins. Ljósmynd/Vegagerðin

Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, og Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks hf., hafa skrifað undir verksamning um byggingu og framkvæmdafjármögnun samvinnuverkefnisins Hringvegur (1) um Hornafjörð.

Tilboð voru opnuð 17. maí 2022 og var Ístak hf lægstbjóðandi í verkið, með tilboð upp á rétt tæplega 6,3 milljarða króna. Verkinu skal að fullu lokið og afhent eigi síðar en 1. desember 2025, að því er Vegagerðin greinir frá.

Hér má sjá myndband sem sýnir grafískt yfirflug yfir fyrirhugaðar framkvæmdir:

Um er að ræða nýja legu hringvegarins um Hornafjarðarfljót sem mun stytta núverandi hringveg um 12 kílómetra. Framkvæmdin felur í sér lagningu 19 kílómetra langs þjóðvegar, byggingu fjögurra tvíbreiðra brúa, 52 metra langrar á Djúpá, 250 m langrar á Hornafjarðarfljót, 114 metra langrar á Hoffellsá og 52 m langrar á Bergá. Einnig snýst verkefnið um lagningu nokkurra hliðarvega, samtals um 9 kílómetra langra, auk tveggja áningarstaða.

„Þetta eru stór tímamót fyrir Vegagerðina enda í fyrsta sinn gengið til samninga um svokallað samvinnuverkefni, sem snýst um að einkaaðili annast fjármögnun opinbers mannvirkis í heild eða að hluta,“ segir Bergþóra á vef Vegagerðarinnar og bætir við að fólk hafi beðið lengi eftir þessari framkvæmd.

Karl tekur í sama streng. „Þetta er búinn að vera langur aðdragandi og mjög lærdómsríkt ferli. Nú hlökkum við til að hefja framkvæmdir og vera í samstarfi við alla aðila á svæðinu um þessa uppbyggilegu framkvæmd.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert