Tvær nýjar gestastofur rísa

Nýja byggingin á Hellissandi setur mikinn svip á umhverfi sitt. …
Nýja byggingin á Hellissandi setur mikinn svip á umhverfi sitt. Hún er alls 710 fermetrar og hýsir aðstöðu fyrir gesti þjóðgarðsins og starfsfólk hans. Ljósmyndir/FSRE

Mikill kraftur er í framkvæmdum við nýjar gestastofur Snæfells- og Vatnajökulsþjóðgarða á Hellissandi og á Kirkjubæjarklaustri.

Fjallað er um framkvæmdirnar í Morgunblaðinu í dag, þriðjudag.

„Nú, þegar ferðafólk þeysist um landið þvert og endilangt, er full ástæða til að varpa ljósi á tvær byggingar sem nú rísa undir merkjum Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna,“ segir í tilkynningu á heimasíðu stofnunarinnar.

Á Hellissandi hillir nú undir lok byggingar þjóðgarðsmiðstöðvar fyrir Snæfellsjökulsþjóðgarðs. Byggingin mun hýsa þjónustumiðstöð þjóðgarðsins með sýningar- og kennsluaðstöðu fyrir gesti, auk rýma fyrir starfsmenn þjóðgarðsins, svo sem skrifstofur, geymslur og aðstöðu fyrir þjóðgarðsverði, alls um 710 fermetrar. Kostnaður við framkvæmdirnar er áætlaður ríflega 600 milljónir króna. Er það verktakafyrirtækið Húsheild sem byggir og hafa framkvæmdir gengið vel. Byggingin er hönnuð af Arkís, en stofan sigraði í hönnunarsamkeppni sem fór fram árið 2006.

Byggingin verður umhverfisvottuð. Samhliða byggingarferlinu fer fram vottunarferli í samstarfi við BREEAM-stofnunina.

765 fermetra gestastofa á Klaustri

Á Kirkjubæjarklaustri rís nú gestastofa Vatnajökulsþjóðgarðs. Gestastofan mun veita upplýsingar til ferðamanna um þjóðgarðinn og nágrenni hans, auk þess sem þar verður fræðslusýning um náttúru og mannlíf svæðisins. Byggingin er á einni hæð með kjallara undir hluta hennar. Uppsteypu hússins er að mestu lokið og frágangur innanhúss að hefjast. Byggingin er 765 fermetrar að stærð en kostnaður er áætlaður 852 milljónir króna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert