Rauðu hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli á áttunda tímanum í morgun. Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Bilun kom upp í flugvél bandaríska flugfélagsins Delta, sem var að koma frá borginni Minneapolis í Bandaríkjunum. Alls voru 190 manns um borð, en vélin lenti heilu og höldnu uppúr klukkan hálf átta og var komin í stæði korter yfir átta.
Guðjón segir hættustigið hafa verið afturkallað rétt rúmlega átta í morgun.
RÚV greindi fyrst frá.